Flokkur · 33 loforð

Fjölskyldur

Skólar, leikskólar, dagvistun og fjölskyldur.

33
Ekki hafið
0
Í vinnslu
0
Að hluta efnt
0
Efnt
0
Svikið

Vegið hlutfall efnt í þessum flokki: 0%

Staða:

Fyrstu 100 dagar · 7

Við ætlum að hefja viðræður við vinnustaði um stofnun leikskóla eða daggæslu fyrir börn starfsmanna.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að sníða umgjörð um dagheimili, nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn í Reykjavík.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að semja við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili í Reykjavík
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að hefja tveggja ára tilraunaverkefni með símafrí í grunnskólum og mæla árangurinn.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til klukkan 17 á virkum dögum.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að vinna með barna- og menntamálaráðherra og kennurum að því að færa einkunnagjöf aftur á talnakvarðann 1-10.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála

Innan 12 mánaða · 12

Við ætlum að innleiða systkinaforgang í leikskólum borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að tryggja heimgreiðslur í allt að 12 mánuði fyrir þau sem kjósa að vera lengur heima að loknu fæðingarorlofi.
12 mán. Ekki hafið Ekki í sáttmála
Við ætlum að efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk dagheimila og leikskóla.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að semja við félag dagforeldra um hærri niðurgreiðslur og gjaldskrá sem samræmist gjaldskrá leikskóla borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að semja við félag dagforeldra um aukinn stuðning og gjaldskrá sem samræmist betur gjaldskrá leikskóla borgarinnar.
Við ætlum að ráðast í aðgerðir til að draga úr 10% veikindahlutföllum hjá starfsmönnum í leikskólum borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að hefja samtal við barna- og menntamálaráðherra um afnám eins leyfisbréfs og styttingu leikskólakennaranáms svo auðvelda megi mönnun leikskóla.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að hefja samtal við barna- og menntamálaráðherra um áhrif afnáms eins leyfisbréfs og styttingar leikskólakennaranáms á mönnun leikskóla og ræða mótvægisaðgerðir.
Við ætlum að hefja læsisátak í grunnskólum borgarinnar og mæla árangurinn.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að hefja læsisátak í grunnskólum borgarinnar og mæla árangurinn. Með nútímatækni og gagnasöfnun.
Við ætlum að innleiða samræmt námsmat í öllum árgöngum grunnskólans og samræmt lokapróf úr grunnskólum borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að birta opinberlega niðurstöður úr PISA og samræmdum mælingum grunnskólanna.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að auka framlög til bókakaupa á skólabókasöfnum borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að auka framlög til bókakaupa á skólabókasöfnum og bæta námsgagnakost grunnskólanna.
Við ætlum að ráðast í verkefnið „Syngjandi skólar“ og gera grunnskólum borgarinnar kleift að innleiða söng í auknum mæli í skólastarf.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að hefja skógræktarátak með grunnskólabörnum í Reykjavík.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að hefja skógræktarátak með leik- og grunnskólabörnum í Reykjavík og planta minnst 100.000 trjám.

Innan kjörtímabils (4 ár) · 12

Við ætlum að tryggja að fjölgun leikskólaplássa sé unnin í samræmi við spálíkan um fjölgun barna með það að markmiði að eyða biðlistum.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að tryggja að minnsta kosti 300 pláss á nýjum dagheimilum fyrir 12 til 30 mánaða börn.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að hefja uppbyggingu hreystileikskóla eða -dagheimila í samstarfi við íþróttafélögin.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi leikskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við styðjum fjölbreytt rekstrarform í leikskólum og ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi leikskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.
Við ætlum að tryggja öllum fjölskyldum sem þess óska pláss fyrir börn sín í leikskóla eða dagheimili innan hverfis.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að innleiða hverfisforgang í leikskóla og tryggja öllum fjölskyldum sem þess óska pláss fyrir börn sín í leikskóla eða dagheimili innan hverfis.
Við ætlum að innleiða móttökudeildir í grunnskólum fyrir börn sem flytja hingað til lands og þekkja hvorki íslenska tungu né íslenskt samfélag.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að innleiða og efla mótttökudeildir í grunnskólum fyrir börn sem flytja hingað til lands og þekkja hvorki íslenka tungu né íslenskt samfélag.
Við ætlum að tryggja að börnum bjóðist hafragrautur við upphaf grunnskóladags.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi grunnskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við styðjum fjölbreytt rekstrarform í grunnskólum og ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi grunnskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.
Við ætlum að fjölga valkostum í skólakerfinu fyrir börn með sérþarfir.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að efla aðgengi að þroskaþjálfum, talmeinafræðingum og mikilvægri stoðþjónustu í leik- og grunnskólum meðal annars með tæknilausnum.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að efla aðgengi að stoðþjónustu við börn í leikskólum meðal annars með tæknilausnum.
Við ætlum að innleiða aukna hreyfingu í skólastarf og bæta gæði skólamáltíða.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að auka áherslu á STEAM fög í grunnskólanum.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála

Framtíðarsýn · 2

Við ætlum að tryggja fjölskyldum áreiðanlegar lausnir strax í kjölfar fæðingarorlofs.
Framtíð Ekki hafið Ekki í sáttmála
Við ætlum að leiða íslenskt skólakerfi í röð 10 fremstu í Evrópu.
Framtíð Ekki hafið Ekki í sáttmála

← Aftur á yfirlit