Flokkur · 27 loforð

Samgöngur

Gatnakerfi, almenningssamgöngur, gönguleiðir og bílastæði.

27
Ekki hafið
0
Í vinnslu
0
Að hluta efnt
0
Efnt
0
Svikið

Vegið hlutfall efnt í þessum flokki: 0%

Staða:

Fyrstu 100 dagar · 6

Við ætlum að fara fram á endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir skýrleika hvað varðar fjármögnun.
100 dagar Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Við ætlum að veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir kl. 18.
100 dagar Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni í samvinnu við íbúa og fyrirtæki.
Við ætlum að fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum í miðborg.
100 dagar Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.
100 dagar Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og auka sveigjanleika.
Við ætlum að hafna fyrirhuguðu deiliskipulagi við Suðurlandsbraut.
100 dagar Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut.

Innan 12 mánaða · 10

Við ætlum að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að hefja rannsóknir á tækifærum til að koma nýjum stofnvegum í jarðgöng í Reykjavík.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og LSH að betri álagsdreifingu umferðar með breytilegu upphafi vinnudags.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að tryggja skilvirkari snjómokstur og götusópun á götum og stígum borgarinnar.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að tryggja skilvirkari snjómokstur og bæta þrif á götum og stígum borgarinnar.
Við ætlum að innleiða skilvirkara greiðslukerfi fyrir Strætó.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að nota tæknilausnir og gervigreind til að kortleggja notkun Strætó og bæta þjónustuna á grundvelli gagna.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að bæta lýsingu við göngustíga í borginni og sér í lagi gönguleiðir barna.
12 mán. Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að bæta lýsingu við göngustíga í borginni og sér í lagi gönguleiðir barna til að tryggja öryggi.
Við ætlum að undirbúa innviði borgarinnar undir innleiðingu sjálfkeyrandi tækni.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að stórbæta aðgengi í borgarlandinu að hreinni íslenskri orku fyrir rafbílanotendur, í samstarfi við aðila á markaði.
12 mán. Ekki hafið Í sáttmála

Innan kjörtímabils (4 ár) · 10

Við ætlum að hefja uppbyggingu Sundabrautar með áherslu á gangalausnir.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að hefja uppbyggingu Sundabrautar og leita leiða til að koma brautinni í göng að hluta.
Við ætlum að hefja framvæmdir við Miklubrautargöng í einkaframkvæmd.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að leita leiða til að flýta Miklubrautargöngum með því að koma þeim í einkaframkvæmd.
Við ætlum að hefja framkvæmdir við mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðarveg.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að ráðast í viðhaldsátak á gangstéttum borgarinnar.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum að endurskoða forsendur Borgarlínu og leita hagkvæmustu leiða við innleiðingu nýs almenningsvagnakerfs á sérakreinum.
Við ætlum að fjölga upphituðum göngustígum í borginni.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að koma undirgöngum og göngubrúm fyrir á gönguleiðum barna sem þvera fjölfarna vegi.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að klára uppbyggingu hjólastíga í samræmi við Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála
Við ætlum að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri á meðan annar betri staður hefur ekki fundist.
4 ár Ekki hafið Mildað eða breytt
Sáttmálinn segir: Við ætlum breyta aðalskipulagi svo tryggja megi rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri, á meðan annar betri staður hefur ekki fundist.
Við ætlum að tryggja að Sundahöfn verði áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar og stækka hafnarsvæðið með landfyllingum.
4 ár Ekki hafið Í sáttmála

Framtíðarsýn · 1

Við ætlum að tryggja fjölbreytta valkosti um greiðar samgöngur og koma fólki hraðar á milli staða.
Framtíð Ekki hafið Ekki í sáttmála

← Aftur á yfirlit